Færsluflokkur: Enski boltinn
Mánudagur, 7. maí 2007
Pistons - Bulls
Detroit spilar í nótt á heimavelli í annað sinn gegn Chicago eftir auðvelt burst í síðasta leik.
Það gekk allt upp hjá þeim síðast - hvort sem það var í vörn eða sókn. Jafnvel hvort þeir voru með byrjunarliðið inná eða varamenn.
Chicago aftur á móti voru skelfilega slakir og þurfa að rífa sig upp í kvöld ætli þeir sér að sanna það fyrir sjálfum sér og öðrum að þeir eigi séns í þessa seríu.
Það sem þarf að gerast frá síðasta leik bara til að vera amk með í kvöld er:
- að fá 20+ stig frá Deng og Gordon - hvorum
- halda sig frá villuvandræðum
- halda turnovers í undir 10 boltum
- miklu stærra framlag frá bekknum
- gera Ben Wallace grein fyrir því að hann er ekki lengur í Pistons
- svo væri ekki verra ef Nocioni mundi fækka air-ball skotum um tvö-þrjú
Chicago Bulls vonast líklega ekki til þess að geta aftur hvílt allt byrjunarliðið á plankanum allan 4. leikhluta.
Leikurinn er á NBA TV á miðnætti.
Jazz - Warriors
Utah hefur svo leik á heimavelli gegn Golden State sem mæta fullir sjálfstraust eftir að hafa kastað Dallas í sumarfrí.
Líkt og Dallas í fyrstu umferð hlýtur Utah liðið að teljast líklegra uppúr þessari seríu (eða hvað?) en þegar hann gengur upp hjá þeim Golden State mönnum - þessi hraði og óskipulagði sóknarleikur með Baron Davis fremstan í flokki getur allt gerst. Mikið hrikalega getur líka verið gaman að horfa á þá.
Davis lék sér að þeim Jason Terry og Devon Harris gegn Dallas en Derron Williams er sterkari varnarmaður og mun gera honum erfiðara fyrir. Eins getur Kirilenko spilað þétta vörn á hann.
Golden State gætu lent í miklum vandræðum með Boozer og eins Okur - sérstaklega ef þeir spila svæðisvörn þar sem hann fær pláss.
Eins og fyrr segir þá er það sóknarleikurinn sem þeir spiluðu gegn Dallas sem getur gert gæfumuninn fyrir Golden State. Þeir þurfa að fá Davis, Richardson og Jackson alla í gang og ef þeir fá Utah útúr skipulaginu sínu þá er allt hægt.
Þeir trúðu að þetta væri hægt gegn Dallas - og trúa vonandi enn
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. maí 2007
Spurs tekur forystuna
111 - 106 fyrir San Antonio.
Spenna fram á síðustu sek.
Svakalegur árekstur og skurður á Nash
Ódýr tæknivilla á Barbosa - en um leið rándýr
Parker og Duncan sjóðandi. Parker með 32 stig og 8 stoð. Duncan 33 stig og 16 fráköst.
Nash 31 stig og 8 stoð. Stoudemire 20 stig og 18 fráköst.
Til hvers er James Jones alltaf í byrjunarliðinu ef þeir ætla hvort sem er aldrei að láta hann spila meira en lélegan varamann ? (9 mín, 0 stig, 0 fráköst, 0 stoð)
Látum svo fylgja þrjár af Nash - Myndarlegur drengurinn
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 6. maí 2007
16 orð ?
Sunnudagur, 6. maí 2007
Nostradamus var ekkert merkilegri en ég
Dallas 4 - Golden State 2 (Fór 2-4)
Phoenix 4 - Lakers 2 (Fór 4-1)
San Antonio 4 - Denver 3 (Fór 4-1)
Houston 4 - Utah 1 (Fór 3-4)
Detroit 4 - Orlando 1 (Fór 4-0)
Cleveland 4 - Washington 1 (Fór 4-0)
Toronto 4 - New Jersey 3 (Fór 2-4)
Chicago 4 - Miami 3 (Fór 4-0)
Þokkalegur spekingur sem maður er
5 réttir sigurvegarar. Hvergi réttar tölur.
Í commentum spáði BB þessu svo:
Detroit vinnur Orlando 4-1
Cleveland vinnur Washington 4-1
Miami vinnur Chicago 4-2
New Jersey tekur Toronto 4-2
Dallas 4 - Golden State 1
Phoenix 4 - LA Lakers 2
San Antonio 4 - Denver 2
Houston 4 - Utah 3.
Og Eiríkur Ólafs:
Dallas 4- Golden State 1
Phoenix 4 - Lakers 1
San Antonio 4- Denver 2
Houston 4- Utah 1
Detroit 4- Orlando 0
Cleveland 4- Washington 0
Toronto 2- New Jersey 4
Chicago 2- Miami 4
Eiríkur hlýtur því að teljast sigurvegari þessarar óformlegu tippkeppni bloggsins í 16-liða úrslitum. Réttar tölur í 4 leikjum af 8. Það er í lagi.
Svo er Vestrið að fara í gang í kvöld
Þetta verður hörkuseria. Ætla að spá henni í 7 leiki þar sem San Antonio klárar þetta svo.
Einhvern veginn held ég samt með Steve Nash og félögum.
Leikurinn hefst samkvæmt mínum útreikningum kl. 19.30 en hann er auglýstur á Sýn 20:50.
Veit ekki alveg hvort þeir ætli að sýna hálfan leikinn eða sýna hann bara aðeins seinna. Þori ekki að fara með það.
Á NBA TV er svo leikur New Jersey og Cleveland kl. 17:00.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Sunnudagur, 6. maí 2007
4ja stiga karfa frá miðju
Rakst þó á myndband úr leik í ABA deildinni (sem á þó ekkert skylt við gömlu ABA deildina).
Þar er annað liðið undir 128-124 og 10 sek. eftir. Liðið sem er undir er með boltann og hlaupa að miðlínunni og skjóta þaðan - og hitta. Fór ég að velta fyrir mér hvað þeir væru að pæla að fara ekki nær en sé svo á stigatöflunni að staðan er þá orðinn 128-128.
Var því að velta fyrir mér: Hvar er 4ja stiga línan ?.. og hvað er að gerist fyrir þessa annars ágætu íþrótt ?
Hér er svo umrætt myndband:
Svo pakkaði Detroit Chicago gjörsamlega saman áðan.
Laugardagur, 5. maí 2007
Detroit - Chicago
Jæja þetta er á. 2. umferð að hefjast og fyrsti leikur: Undanúrslit í Austrinu - gömlu stórveldin og keppninautarnir Detroit Piston og Chicago Bulls.
Leikurinn er í beinni á NBA TV kl. 11 í kvöld og þeir sem komast ekki í NBA TV geta séð þetta á netinu. (Getið sent á mig mail fyrir leiðbeiningar með það)
Þetta er tíminn fyrir alla skápa-Bulls aðdáendurna sem hættu að horfa á körfubolta þegar Jordan lagði skóna á hilluna að rífa sig upp og kíkja á leikinn - þessir sem laumast alltaf á textavarp/355 á morgnana.
Enski boltinn | Breytt 6.5.2007 kl. 20:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Laugardagur, 5. maí 2007
Smush Parker ekki áfram hjá Lakers
Phil Jackson, þjálfari L.A. Lakers tilkynnti í gær að leikstjórnandi liðsins, Smush Parker yrði ekki hjá liðinu á næstu leiktíð. Parker verður samningslaus í sumar og þarf þá að finna sér nýtt félag.
Parker sem var að ljúka sínu öðru ári hjá Lakers hafði fyrir úrslitakeppnina í ár byrjað inná í 167 leikjum af 169 fyrir liðið en það var svo nýliðinn Jordan Farmar sem tók stöðu hans í úrslitakeppninni.
Smush er leikmaður sem við munum ekki leitast eftir að komi og spili með okkur áfram sagði Jackson við fjölmiðla í gær.
Parker gaf svo í skyn við sama tækifæri að hann væri ekki ósáttur að losna frá félaginu en hann var næst launalægsti leikmaður þess þrátt fyrir nokkura ára reynslu í deildinni en hann hefur áður leikið með Cleveland, Phoenix og Detroit.
Líklegt er talið að Lakers reyni að næla sér í nýjan leikstjórnanda í sumar. Farmar er efnilegur en langt frá því að vera tilbúinn í að vera lykilmaður í Lakers liðinu.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 16:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 5. maí 2007
The Shaq Attack
Enski boltinn | Breytt 6.5.2007 kl. 20:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. maí 2007
RJ hetja New Jersey
8 sekúndur eftir - 1 stigi undir. Richard Jefferson prjónar sig skemmtilega að körfu Toronto og setur layup. Kemur sér svo til baka og les auðveldlega sóknarkerfi Toronto - stígur út Chris Bosh og kemst inní sendinguna. 98-97 og Kanadapiltar komnir í sumarfrí.
Eina spennandi serian austan megin en þó ekki. Flestir spáðu einmitt sigri Nets í þessum 6-7 leikjum. Spáði reyndar sjálfur 4-3 fyrir Toronto en er frekar sáttur að hafa rangt fyrir mér í þetta skiptið.
Eins eðlilegt og það er - þá var Jason Kidd með þrefalda tvennu að meðaltali í seriunni (14-13-10). Nokkuð vel af sér vikið af 34 ára gömlum manni sem rétt slefar í 1.90. Snillingur.
En svo er þetta allt að fara í gang í kvöld. Í hinni margrómuðu Detroit borg taka heimamenn á móti Chicago Bulls í fyrsta leik 2. umferðar. Ben Wallace mætir á kunnuglegar slóðir og fær að berja á gömlum félögum. Þetta verður rosalegt. Úrslitaseria austursins að margra mati.
Svo vestur í Texas er víst líka einhver bland-í-poka leikur hjá þessum tveimur liðum sem hafa enn ekki klárað 1.umferðina. Held ég haldi með Utah - þó að Golden State ætti sennilega meira breik í Houston. Æjh mér er slétt.
NBA TV kl. 2300
Detroit Pistons - Chicago Bulls
Föstudagur, 4. maí 2007
Tiltekt hjá Timberwolves - Klappstýrurnar ekki að standa sig
Þær þóttu ekki standa undir væntingum í vetur
Það er nóg um að vera hjá Minnesota Timberwolves þessa dagana. Ekki einungis að Glen Taylor eigandi liðsins hafi fyrr í vikunni gefið það sterklega í skyn að það kæmi vel til greina að trade-a í burtu stórum hluta liðsins í sumar heldur virðist liðið nú hafa fundið ástæðu slaks gengis síðustu ár - klappstýrurnar !
Melissa Sax og Tura Hallblade sem hafa samið dansa fyrir klappstýrulið Timberwolves í 7 ár voru í dögunum reknar frá félaginu. Klappstýrulið Úlfanna datt út í fyrstu umferð útsláttarkeppni klappstýra á nba.com og þykir það greinilega ekki ásættanlegt í Minneapolis borg.
Eftirmaður þeirra stallna hefur hefur eftir því sem síðuhaldari veit best ekki verið ráðinn en ljóst þykir að þessi hlýtur að koma sterklega til greina:
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)