Jahá..

"...Barbosa er brasilískur landsliðsmaður og er hann fyrsti Brasilíumaðurinn sem fær þessa viðurkenningu."

Ég skal segja ykkur það. Fyrsti Brasilíumaðurinn sem er valinn 6th Man of the Year í NBA.  Ekki hefði mér dottið það í hug! Woundering


mbl.is Mitchell þjálfari ársins í NBA-deildinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sam Mitchell þjálfari ársins

SM 

Fyrrverandi Minnesota Timberwolves leikmaðurinn Sam Mitchell var í dag útnefndur þjálfari ársins í NBA deildinni.  Mithcell var nokkuð á undan næsta manni í kosningunni en næstur kom þjálfari Utah Jazz, Jerry Sloan. 

Eins og í kosningunni um Sjötta mann ársins voru það íþróttafréttamenn í Bandaríkjunum og Kananda sem tóku þátt.  Þessir sömu fréttamenn voru mjög duglegir að fjalla um slakan árangur Toronto liðsins frameftir móti og orðuðu Mitchell oftar en ekki við brottrekstur frá félaginu.
Það er þó ljóst að þeir hafa gleymt því um leið og Toronto fór að vinna leiki og eins og áður segir var Mitchell nokkuð afgerandi efstur.

Þjálfari, Lið1.2.3.Stig
1. Sam Mitchell, Toronto494320394
2. Jerry Sloan, Utah392822301
3. Avery Johnson, Dallas283135268
4. Jeff Van Gundy, Houston101927134
5. Mike D’Antoni, Phoenix23322


Úrslit eftir bókinni og Barbosa 6th man...

Detroit vann Orlando 98-90 í nótt og Houston lagði Utah þar sem lokatölur urðu þær sömu.
Sigurliðin komu sér þar með bæði í þægilega 2-0 stöðu en leika næst tvo leiki á útivelli.


Í nótt verða svo hörkuleikir þar sem Chicago (1) leika á heimavelli gegn Miami (0).

Toronto (0) töpuðu fyrsta heimaleiknum á móti New Jersey (1) og er mjög mikilvægt fyrir þá að jafna metin á heimavelli í nótt áður en þeir halda til Jersey.

Loks taka Phenoix (1) á móti Lakers (0) en maður leiksins frá fyrri leiknum, Leandro Barbosa var einmitt í gær valinn af blaðamönnum Sjötti maður ársins.


Það eru íþróttafréttamenn frá Bandaríkjunum og Kanada sem standa að kjörinu en kosningin fer þannig fram að þeir velja leikmenn í fyrstu 3 sætin.   Fyrir 1. sætið eru gefin 5 stig, 3 stig fyrir 2. sætið 1 stig fyrir það 3.  Útfrá því er svo reiknaður heildarstigafjöldi en það er hann sem sker úr um sigurvegara.  Þeir leikmenn sem hafa komið inná í fleiri leikjum en þeir hafa byrjað koma til greina í kosningunni.

Hinn eldsnöggi Barbosa er vel að titlinum kominn. Hann hefur spilað mjög vel í vetur með 18.1 stig, 4 stoðsendingar og 2.7 fráköst að meðaltali í leik á 32.7 mínútum. Hann byrjaði 18 sinnum inná af þeim 80 leikjum sem hann lék.
Í öðru sæti var svo San Antonio Spurs leikmaðurinn Mano Ginobili en hann varð töluvert á eftir Barbosa í kosningunni.

Læt svo fylgja 5 efstu sætin í kosningunni:

Leikmaður, Lið1.2.3.Stig
1. Leandro Barbosa, Phoenix101241578
2. Manu Ginobili, San Antonio185029269
3. Jerry Stackhouse, Dallas74055210
4. David Lee, New York--31322
5. Kyle Korver, Philadelphia12819


barbosa


Leikur Toronto og New Jersey verður í beinni á NBA TV í nótt en hina tvo leikina er hægt að sjá beint á netinu.


mbl.is NBA: Detroit komið í 2:0 gegn Orlando
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Önnur "óvænt" úrslit í vestrinu

Denver byrjaði að koma á óvart með að vinna San Antonio og svo gerðu Golden State sér lítið fyrir í nótt og kláruðu Dallas þar sem Baron Davis átti hrikalega stóran leik með 33 stig, 14 fráköst og 8 stoðsendingar.

Það kemur vissulega alltaf á óvart þegar liðið í 8.sæti vinnur liðið í 1.sæti en þetta tilfelli er þó örlítið sérstakt.
Á þessu frábæra tímabili hjá Dallas liðinu sem tapaði aðeins 15 leikjum komu 4 þessara tapa á móti Golden State! Semsagt næstum 1/3 tapleikjanna.
Auk þess vann Golden State líka síðasta leik liðanna tímabilið á undan og varð leikurinn í nótt því 6. sigurleikur Golden State á Dallas í röð. Geri aðrir betur.


mbl.is NBA: Dallas tapaði óvænt gegn Warriors
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Denver 1 - 0 San Antonio

San Antonio var rétt í þessu að tapa fyrsta leiknum í einvíginu við Denver þrátt fyrir að hafa verið á heimavelli.

AI og Melo með stórleik hjá Denver, báðir með 30+ stig.  Camby að vanda sterkur til baka.

Duncan og Parker bestir hjá Spurs.  Horry líka með þokkalega innkomu.


Brynjar Þór Björnsson

Af Karfan.is:

"KR varð í dag Íslandsmeistari í drengjaflokki eftir framlengdan leik gegn bikarmeisturum Keflavíkur, leikar fóru 109-100. Brynjar Þór Björnsson fór á kostum í leiknum og skoraði 44 stig og gaf 10 stoðsendingar. 24 stiganna komu í fjórða leikhluta og þ.á.m. skoraði hann þriggja stiga körfu frá miðju um leið og lokaflaut venjulegs leiktíma gall og jafnaði þar með leikinn."


Þess er skemmst að minnast þegar Brynjar setti niður þrist í oddaleiknum á móti Snæfell og tryggði KR þar með framlengingu sem skilaði þeim í ógleymanlega úrslitaleiki.

Þessi drengur er þvílíkur snillingur að það nær engri átt.


BB


NBA Playoffs - Spá

Datt inná skemmtilega spá um úrslitakeppnina á http://eirikuro.blog.is/blog/eirikuro/entry/185068/ 
Hendi hér með minni spá inn og eins og Eiríkur bendir á væri gaman að búa til smá umræðu og stemningu í kringum þetta.

Playoffs


Dallas 4 - Golden State 2 – Það þekkir Dirk enginn betur en Don Nelson – styrkleika og veikleika.  Golden State fara með þetta í 6 leiki

Phoenix 4 - Lakers 2 -  Phoenix lenti í miklu basli með Lakers í úrslitakeppninni í fyrra en Lakers er búnir að vera skelfilega lélegir stóran hluti vetrarins.

San Antonio 4 - Denver 3 – Denver með besta varnarmann deildarinnar og tvo fáránlega skorara hægja aðeins á San Antonio en Spurs eru með alltof massíft lið til að detta út.

Houston 4 - Utah 1 – Eftir góða byrjun hefur Utah liðið ekki verið að gera merkilega hluti uppá síðkastið.  Með T-Mac og Yao heila getur Houston liðið farið langt.

Detroit 4 - Orlando 1 – Maður hefur ekki mikla trú á að Detroit liðið klikki en það hélt maður líka í fyrra áður en þeir fóru í bullið.  Ef þeir ætla að halda áfram að senda Orlando leikmennina á línuna í hverri sókn þá hljóta þeir að lenda í villuvandræðum amk einu sinni og tapa einum leik.

Cleveland 4 - Washington 1 – Það er ekki langt síðan að Washington var að berjast um 2.sætið í Austrinu.  Eftir að þeir misstu svo báða All-Star leikmennina sína í meiðsli hefur ekkert gengið og þeir eiga ekki breik í þessa seríu. Munu þó stela einum.

Toronto 4 - New Jersey 3 – Toronto byrjuðu á tapi á heimavelli í gær en ég ætla samt að spá þeim áfram.  Reynslan er auðvitað New Jersey megin en Toronto er með betra körfuboltalið.

Chicago 4 - Miami 3 – Þetta verður rosaleg sería eins og í fyrra en nú mun þetta detta Chicago megin.  Shaq er augljóslega ekki í sínu besta formi og Wade er langt frá því að vera heill.  Menn vildu meina að eini möguleiki Chicago á sigri væri ef Hinrich gæti spilað almennilega vörn á Wade.  Hinrich var þó lítið sem ekkert með í gær þegar Bulls komust í 1-0.

Snillingur (Video)

Þarf að ræða þetta eitthvað frekar?

Smellið á myndina til að sjá meira

TT #24

 


NBA Playoffs

Í nótt fór fram síðasta umferðin í deildarkeppni NBA deildarinnar.  Endanleg niðurröðun er því komin á úrslitakeppnina sem hefst á laugardaginn og mun fyrsta umferðin líta svona út.

Vestur:

Dallas (1) - Golden State (8)
Pheonix (2) - LA Lakers (7)
San Antonio (3) - Denver (6)
Utah (4) - Houston (5)


Austur:

Detroit (1) - Orlando (8)
Cleveland (2) - Washington (7)
Toronto (3) - New Jersey
Miami (4) - Chicago (5)


Læt svo fylgja með fyrst lokastöðuna eins og þetta endaði.

 

 

 

Unnir

Tapaðir

   %

 

 

 

Unnir

Tapaðir

   %

1.

Dallas

   67

   15

0.817

 

1.

Detroit

   53

   29

0.646

2.

Phoenix

   61

   21

0.744

 

2.

Cleveland

   50

   32

0.610

3.

San Antonio

   58

   24

0.707

 

3.

Toronto

   47

   35

0.573

4.

Utah

   51

   31

0.622

 

4.

Miami

   44

   38

0.537

5.

Houston

   52

   30

0.634

 

5.

Chicago

   49

   33

0.598

6.

Denver

   45

   37

0.549

 

6.

New Jersey

   41

   41

0.500

7.

L.A. Lakers

   42

   40

0.512

 

7.

Washington

   41

   41

0.500

8.

Golden State

   42

   40

0.512

 

8.

Orlando

   40

   42

0.488



Hér að neðan er hún svo eins og hún ætti undir öllum eðlilegum og rökréttum kringumstæðum að vera.
En David Stern er auðvitað stórbilaður og lítið við því að segja eða gera.

 

 

 

Unnir

Tapaðir

   %

 

 

 

Unnir

Tapaðir

   %

1.

Dallas

   67

   15

0.817

 

1.

Detroit

   53

   29

0.646

2.

Phoenix

   61

   21

0.744

 

2.

Cleveland

   50

   32

0.610

3.

San Antonio

   58

   24

0.707

 

3.

Chicago

   49

   33

0.598

4.

Houston

   52

   30

0.634

 

4.

Toronto

   47

   35

0.573

5.

Utah

   51

   31

0.622

 

5.

Miami

   44

   38

0.537

6.

Denver

   45

   37

0.549

 

6.

New Jersey

   41

   41

0.500

7.

L.A. Lakers

   42

   40

0.512

 

7.

Washington

   41

   41

0.500

8.

Golden State

   42

   40

0.512

 

8.

Orlando

   40

   42

0.488



Alveg útí hött að lið sem eru í sömu deild, leika jafnmarga leiki við sömu lið séu ekki einfaldlega raðað í sæti eftir vinningshlutfalli.  Meikar bara engan veginn sens að raða liðum niður eftir hvar þau eru staðsett á landakorti.


Miðjan

img_7410 

Umfjöllun um leiki KR og Njarðvíkur verður að sjálfsögðu ekki endanlega hætt fyrr en þætti stuðningsmanna KR verður minnst. Fyrir þá sem urðu svo óheppnir að sjá ekki leikina í rimmunni verður stemningunni ekki líst. Þetta er hreint út sagt það magnaðasta sem sést hefur.

Heitustu stuðningsmenn KR voru mættir í höllina kl. 18 og fóru þaðan rétt fyrir 23.
Þá lá leiðin beint niður í miðbæ Reykjavíkur þar sem stuðningsmenn, leikmenn, þjálfarar og stjórnarmenn KR troðfylltu skemmtistaðinn Olíver þar sem var sungið, dansað og trallað stanslaust til að verða kl. 2 eftir miðnætti.  Að lokum var farin skrúðganga niður Laugarveginn sem innihélt allan pakkann; Nokkri tugi syngjandi stuðningsmanna, Íslandsmeistarabikarinn og svo voru að sjálfsögðu tendruð blys.  Allra heitustu stuðningsmennirnir héldu svo fögnuði áfram eitthvað fram á morgun og varð þar með sigurhátíð Vesturbæinga allt að 12 tímar!

Í dag tekur svo við að horfa á leikinn endursýndan á Sýn, halda áfram að fagna og vera stoltur af því að vera KR-ingur.

Svo er sumarið handan við hornið og í fótboltanum bíður önnur dolla sem bíður þess að komast heim í KR heimilið.


KR Íslandsmeistarar 2007 !

search_4296 
Fannari fannst alveg hundleiðinlegt að rífa dolluna á loft !

Knattspyrnufélag Reykjavíkur varð í gær í 10. sinn Íslandsmeistarar í körfubolta, karlaflokki.  Liðið sigraði Njarðvíkinga 3-1 í seriu sem er sú rosalegasta í manna minnum.  Eftir að hafa lent undir 1-0 komu KR ingar sterkir til baka og unnu 3 leiki í röð og tryggðu sér titilinn.  Sama leið og liðið fór gegn Grindavík árið 2000, síðast þegar þeir urðu meistarar.

Segja má að sigurinn hafi verið sigur liðsheildarinnar.  KR-ingar spiluðu á miklu fleiri leikmönnum en Njarðvíkingar og skiptir það sköpum þegar slík spenna er alltaf í lok leikjanna. Njarðvíkingar lentu í því í öllum leikjunum að lykilmenn voru orðnir þreyttir eða í villuvandræðum og þá lentu þeir alltaf í vandræðum.  Brenton 35 ára er ekki í sama standi og oft áður og Jeb Ivey átti það til að taka fáránleg skot í lok leikjanna.
Á meðan héldu KR-ingar ró sinni, róteruðu vel í liði sínu og sáu til þess að það væru þeir sem væru yfir þegar leikjunum lauk.  Það er jú víst það sem skiptir máli.

Annars bíða nú ótal margar greinar um leikinn í hinum ýmsu fjölmiðlum lestrar svo að punkturinn verður settur hér.

ÁFRAM KR

 


Úrslitaleikur hjá KR í kvöld og línur að skýrast í NBA

njardvik_kr_playoffs_leikur_4

Nokkrir tímar í þetta. Spennan farin að magnast. Þetta verður rosalegt

KR ingar geta í kvöld tryggt sér 10. Íslandsmeistaratitil félagsins en liðið varð síðast meistari árið 2000.  Steinar Kaldal er eini leikmaðurinn úr meistaraliðinu fyrir 7 árum sem leikur í kvöld en í því liði voru einnig snillingar á borð við Keith Vassell, Jónatan Bow, Jakob Sigurðsson og ekki síst leikmann ársins í deildinni, Ólaf Ormsson.

En þeir eru ekki síðri snillingarnir sem stíga inná völlinn í kvöld og mikil bjartsýni ríkir í Vesturbænum. DHL höllin verður troðin í kvöld og er verið að vinna í að setja upp fleiri palla í salnum.  KR aðdáendur munu svo að vanda rúlla yfir Njarðvíkinga á pöllunum og virka sem 6. maður líkt og þeir hafa gert alla seriuna.


banner_nba


Í NBA tryggðu Lakers sér loksins sæti í úrslitunum en þeir fengu hjálp frá nágrönnunum í Clippers sem töpuðu fyrir Sacramento.

Spurs töpuðu fyrir Dallas í leik þar sem Tim Duncan var í bullinu og fékk á sig 2 tæknivillur með stuttu millibili.  Þar með verður 3. sætið þeirra.

Austan megin pakkaði Bulls saman vængbrotnu Wizards liði og þarf nú að sigra Nets úti í síðasta leik til að tryggja sér 2. sætið og heimaleikjarétt frameftir úrlslitakeppni.  Takist það verður það 50. sigurleikur liðsins í vetur, en það hafa þeir ekki afrekað síðan 1997. 
(Ágætt að leiðrétta hér með Þorstein Gunnarsson sem tilkynnti í fréttum Stöðvar 2 að Chicago væri nú í fyrsta sinn að ná 50% vinningshlutfalli síðan ´97. Það er ekki rétt)

Cleveland á líka séns á 2. sætinu en þeir eru nú 5. sæti.  Vinni þeir sýna leiki og Bulls tapa á móti Nets hafi þau sætaskipti.  Þetta eitt hlýtur nú að sýna David Stern hversu brenglað þetta kerfi er hjá honum.

Bryan Colangelo og Sam Mitchell sýna enn og aftur hvað þeir eru að gera góði hluti hjá Toronto sem unnu New York í gær og eru að landa 3. sætinu.  Í fyrsta skipti í 5 ár sem þeir fara í úrslitakeppnina.
mbl.is Nær KR að landa titlinum á heimavelli gegn Njarðvík?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KR komið í 2-1 !!!!

457166534_6086a1554e 

Tveir snillingar.  En það er alveg ljóst hvor þeirra er að klára leikina þessa dagana.

Endum þetta svo á sálmi sem fékk að hljóma oft og vel í dag.

O-óóóó!! O-óóóó!!
Við erum KR!
Reykjavíkurstoltið
Sanna stórveldið!!
O-óóóó!! O-óóóó!! 

Ótrúlegt hvernig KR ingar gjörsamlega jarða heimamenn á pöllunum.  Þvílík stemning.


mbl.is KR getur tryggt sér meistaratitilinn á heimavelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1-1

1340982_jeremiah_sola1341009_tyson_patterson1340994_palmi_freyr_sigurgeirsson

Frábær seiglusigur hjá KR í kvöld.

JJ í bullinu fyrstu þrjá leikhlutana en steig upp þegar allt var undir og kláraði þetta. Snillingur.
Tyson stóð fyrir sínu og Pálmi var frábær.

Lykilmenn voru ekki alveg uppá sitt besta hjá Njarðvík og erfiðastir andstæðinganna úr Reykjanesbæ voru þeir Jóhann Ólafsson og að venju, Kristinn Óskarsson.

 

Hvernig var hægt að dæma buzzer þristinn hans Darra off án þess að skoða þetta í sjónvarpi ?


mbl.is Magnaður lokakafli tryggði KR sigur gegn Njarðvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur 2

njardvik_kr_playoffs_leikur_2

Skyldumæting í KR Heimilið í kvöld þar sem allt er undir hjá KR-ingum sem ætla sér að jafna einvígið í kvöld.

Það er klárt mál að til þess þarf að spila almennilega vörn á Ivey og sérstaklega Brenton.  Treysti ég Steinari Kaldal fullkomlega til þess, fái hann sénsinn.

Undir körfunni eru KR-ingar ekki með sömu breidd og Njarðvíkingar.  Með Fannar í villuvandræðum geta KR-ingar lent í gríðarlegum vandræðum þar sem að Baldur Ólafsson er aðeins í standi til að spila nokkrar mínútur og eins góður leikmaður og Sola er þá er hann töluvert sterkari framherji en miðherji.  Því er mjög mikilvægt að Fannar haldi sig frá villuvandræðum og ekki síður að samræmið í dómgæslunni verði meira en það var í Njarðvík þar sem hver bíó-villan á fætur annarri var dæmd á Fannar á meðan Igor Beljanski fékk að berja mann og annan að vild.

Ef þetta gengur eftir og Tyson spilar sinn leik og Brynjar setur sína þrista hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu.  Óska þó ef til vill eftir aðeins meira framlagi frá Pálma og Skarphéðinni.

Á flautunni í kvöld verður eins og í fyrsta leiknum Suðurnesjamaðurinn Kristinn Óskarsson en með honum verður Eggert Þór Aðalgeirsson.

 

P.S. Óskar Örn Hauksson er svo vinsamlegast beðinn um að sitja réttu megin í stúkunni ætli hann sér að spila fleiri leiki fyrir KR.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband