NBA Playoffs - Spá

Datt inná skemmtilega spá um úrslitakeppnina á http://eirikuro.blog.is/blog/eirikuro/entry/185068/ 
Hendi hér með minni spá inn og eins og Eiríkur bendir á væri gaman að búa til smá umræðu og stemningu í kringum þetta.

Playoffs


Dallas 4 - Golden State 2 – Það þekkir Dirk enginn betur en Don Nelson – styrkleika og veikleika.  Golden State fara með þetta í 6 leiki

Phoenix 4 - Lakers 2 -  Phoenix lenti í miklu basli með Lakers í úrslitakeppninni í fyrra en Lakers er búnir að vera skelfilega lélegir stóran hluti vetrarins.

San Antonio 4 - Denver 3 – Denver með besta varnarmann deildarinnar og tvo fáránlega skorara hægja aðeins á San Antonio en Spurs eru með alltof massíft lið til að detta út.

Houston 4 - Utah 1 – Eftir góða byrjun hefur Utah liðið ekki verið að gera merkilega hluti uppá síðkastið.  Með T-Mac og Yao heila getur Houston liðið farið langt.

Detroit 4 - Orlando 1 – Maður hefur ekki mikla trú á að Detroit liðið klikki en það hélt maður líka í fyrra áður en þeir fóru í bullið.  Ef þeir ætla að halda áfram að senda Orlando leikmennina á línuna í hverri sókn þá hljóta þeir að lenda í villuvandræðum amk einu sinni og tapa einum leik.

Cleveland 4 - Washington 1 – Það er ekki langt síðan að Washington var að berjast um 2.sætið í Austrinu.  Eftir að þeir misstu svo báða All-Star leikmennina sína í meiðsli hefur ekkert gengið og þeir eiga ekki breik í þessa seríu. Munu þó stela einum.

Toronto 4 - New Jersey 3 – Toronto byrjuðu á tapi á heimavelli í gær en ég ætla samt að spá þeim áfram.  Reynslan er auðvitað New Jersey megin en Toronto er með betra körfuboltalið.

Chicago 4 - Miami 3 – Þetta verður rosaleg sería eins og í fyrra en nú mun þetta detta Chicago megin.  Shaq er augljóslega ekki í sínu besta formi og Wade er langt frá því að vera heill.  Menn vildu meina að eini möguleiki Chicago á sigri væri ef Hinrich gæti spilað almennilega vörn á Wade.  Hinrich var þó lítið sem ekkert með í gær þegar Bulls komust í 1-0.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Phoenix 4 - Lakers 2,  don't think so. Phoenix 3 - Lakers 4

Bobby (IP-tala skráð) 22.4.2007 kl. 18:18

2 identicon

Detroit vinnur Orlando 4-1, Cleveland vinnur Washington 4-1, Miami vinnur Chicago 4-2 og New Jersey tekur Toronto 4-2.

Detroit og Cleveland eru með auðveld og augljós formsatriði sem þarf að klára. Ég tippa á Miami af því liðið er búið að láta mig líta illa út í spám í meira en ár og af því það eru holur í Chicago-liðinu þó ég fíli það í botn. Tippa svo á Jersey af því þeir eru með aðeins meiri reynslu en Toronto. Hvorugt þessara liða hefur þó chops til að fara langt í úrslitakeppninni.

Dallas 4 - Golden State 1, Phoenix 4 - LA Lakers 2, San Antonio 4 - Denver 2, Houston 4 - Utah 3.

Dallas fer varla að tapa meira en einum leik fyrir Golden State. Það á ekki að vera hægt. Lakers liðið nær alltaf að púlla eitthvað smá drama, en ég trúi ekki að Phoenix fari að dúllast með þá í sjö leiki eins og í fyrra. San Antonio klárar Denver þrátt fyrir hikst í fyrsta leik (ekki auðvelt að fá heitt lið í fyrstu umferð þriðja árið í röð) og ég held að Houston klári Utah - einfaldlega af því Utah er að spila sinn versta bolta á tímabilinu á síðustu þremur vikum og af því ekkert lið í deildinni matchast eins illa gegn Utah og Houston (þó ég seti stórt spurningarmerki við allt Houston-hype sem er í gangi - það er úr lausu lofti gripið - þú ferð ekki langt í úrslitakeppni með Rafer Alston sem leikstjórnanda). 

BB (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 03:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband