Föstudagur, 4. maí 2007
Tiltekt hjá Timberwolves - Klappstýrurnar ekki að standa sig

Þær þóttu ekki standa undir væntingum í vetur
Það er nóg um að vera hjá Minnesota Timberwolves þessa dagana. Ekki einungis að Glen Taylor eigandi liðsins hafi fyrr í vikunni gefið það sterklega í skyn að það kæmi vel til greina að trade-a í burtu stórum hluta liðsins í sumar heldur virðist liðið nú hafa fundið ástæðu slaks gengis síðustu ár - klappstýrurnar !
Melissa Sax og Tura Hallblade sem hafa samið dansa fyrir klappstýrulið Timberwolves í 7 ár voru í dögunum reknar frá félaginu. Klappstýrulið Úlfanna datt út í fyrstu umferð útsláttarkeppni klappstýra á nba.com og þykir það greinilega ekki ásættanlegt í Minneapolis borg.
Eftirmaður þeirra stallna hefur hefur eftir því sem síðuhaldari veit best ekki verið ráðinn en ljóst þykir að þessi hlýtur að koma sterklega til greina:
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 4. maí 2007
Vísir
Fyrir þá sem hafa áhuga á að lesa lengri og vandaðri greinar um NBA úrslitakeppnina bendi ég á körfuboltasíðu Vísis http://www.visir.is/section/IDROTTIR03. Þar eru frábærir hlutir í gangi.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 4. maí 2007
Later Mavs

Stephen Jackson ákvað að halda sig lengst af á mottunni og einbeita sér að því að spila körfubolta. Hann setti 7 þrista af 8 og endaði með 33 stig.
Sigurinn hjá Golden State var sannfærandi. Sæmilega jafnt fram að hálfleik en 36-15 þriðji leikhluti kláraði þetta.
Howard og Stackhouse með 20 fyrir Dallas - Nowitski 8 og þar af 0 af 6 í þristum. Er ekki örugglega búið að skila inn atkvæðaseðlum fyrir MVP ?
Úrslitaleikur hjá Houston og Utah á laugardag
Utah vann Houston nokkuð þægilega á heimavelli 94-82. Nú hafa bæði liðin unnið alla heimaleiki sína og eftir bókinni verður það þá Houston sem tekur oddaleikinn á laugardaginn.
Mikið yrði þó skemmtilegt að fá Utah-Golden State í undanúrslitum í Vestrinu.

T-Mac reynir að komast framhjá Boozer í nótt
![]() |
NBA: Golden State Warriors slógu Dallas út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)