1-1

1340982_jeremiah_sola1341009_tyson_patterson1340994_palmi_freyr_sigurgeirsson

Frábær seiglusigur hjá KR í kvöld.

JJ í bullinu fyrstu þrjá leikhlutana en steig upp þegar allt var undir og kláraði þetta. Snillingur.
Tyson stóð fyrir sínu og Pálmi var frábær.

Lykilmenn voru ekki alveg uppá sitt besta hjá Njarðvík og erfiðastir andstæðinganna úr Reykjanesbæ voru þeir Jóhann Ólafsson og að venju, Kristinn Óskarsson.

 

Hvernig var hægt að dæma buzzer þristinn hans Darra off án þess að skoða þetta í sjónvarpi ?


mbl.is Magnaður lokakafli tryggði KR sigur gegn Njarðvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikur 2

njardvik_kr_playoffs_leikur_2

Skyldumæting í KR Heimilið í kvöld þar sem allt er undir hjá KR-ingum sem ætla sér að jafna einvígið í kvöld.

Það er klárt mál að til þess þarf að spila almennilega vörn á Ivey og sérstaklega Brenton.  Treysti ég Steinari Kaldal fullkomlega til þess, fái hann sénsinn.

Undir körfunni eru KR-ingar ekki með sömu breidd og Njarðvíkingar.  Með Fannar í villuvandræðum geta KR-ingar lent í gríðarlegum vandræðum þar sem að Baldur Ólafsson er aðeins í standi til að spila nokkrar mínútur og eins góður leikmaður og Sola er þá er hann töluvert sterkari framherji en miðherji.  Því er mjög mikilvægt að Fannar haldi sig frá villuvandræðum og ekki síður að samræmið í dómgæslunni verði meira en það var í Njarðvík þar sem hver bíó-villan á fætur annarri var dæmd á Fannar á meðan Igor Beljanski fékk að berja mann og annan að vild.

Ef þetta gengur eftir og Tyson spilar sinn leik og Brynjar setur sína þrista hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu.  Óska þó ef til vill eftir aðeins meira framlagi frá Pálma og Skarphéðinni.

Á flautunni í kvöld verður eins og í fyrsta leiknum Suðurnesjamaðurinn Kristinn Óskarsson en með honum verður Eggert Þór Aðalgeirsson.

 

P.S. Óskar Örn Hauksson er svo vinsamlegast beðinn um að sitja réttu megin í stúkunni ætli hann sér að spila fleiri leiki fyrir KR.


Bloggfærslur 12. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband