Færsluflokkur: Íþróttir
Föstudagur, 2. febrúar 2007
Carmelo Anthony ekki valinn í All-Star leikinn
Í nótt voru tilkynntir hverjir yrði varamenn stjörnuliðana í All-Star leiknum sem fer fram um miðjan mánuðinn. Byrjunarliðin höfðu núþegar verið tilkynnt eftir að netverjar höfðu kosið þá leikmenn sem skyldu byrja. Sjá betur hér http://ithrottir.blog.is/blog/ithrottir/entry/108994/
Það voru þjálfarar liðanna í deildinni sem kusu svo varamennina 7 sem voru eftirtaldir:
Vestur | Austur | |
Steve Nash Phoenix | Caron Butler - Washington | |
Shawn Marion Phoenix | Dwight Howard - Orlando | |
Amaré Stoudamire Phoenix | Chauncey Billups - Detroit | |
Carlos Boozer Utah | Richard Hamilton - Detroit | |
Allen Iverson Denver | Jason Kidd - New Jersey | |
Dirk Nowitzki Dallas | Vince Carter - New Jersey | |
Tony Parker - San Antonio | Jermaine O´Neal Indiana |
Það sem kemur mest á óvart í þessu vali er að Carmelo Anthony, stigahæsti leikmaður deildarinnar og jafnfram Besti leikmaður Bandaríska landsliðsins 2006 var ekki valinn í Stjörnuleikinn og má rekja það beint til þeirra agavandamála sem Anthony hefur átt við að stríða.
Það er þó ekki öll nótt úti enn fyrir Anthony því að Yao Ming hefur núþegar tilkynnt að hann muni ekki taka þátt í leiknum og auk þess er Carlos Boozer búinn að vera meiddur og er óvíst um hans þátttöku. David Stern sjálfur mun því velja leikmenn í þeirra stað og þrátt fyrir að vera ekki mesti aðdáandi Anthony er talið líklegt að Stern velji hann til að taka þátt í leiknum
Það kom líka nokkuð á óvart að Ben Wallace var ekki valinn en það er þá í fyrsta sinn sem hann tekur ekki þátt í All-Star leik síðan 2001.
Dwight Howard, Carlos Boozer og Caron Butler hafa ekki áður verið valdir til að spila All-Star leik.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
Luol Deng
Luol Deng
Eftir mögur ár í kjölfar þess að Michael Jordan hætti árið 1998 eftir fékk Chicago Bulls liðið endurnýjun lífdaga með sterkum nýliðum á borð við Ben Gordon, Kirk Hinrich, Chris Duhon og Luol Deng fyrir 3-4 árum.
Luol Deng sem hefur spilað vel síðustu 2 tímabil og gjörsamlega slegið í gegn á fyrri helmings þessa tímabils með 17.8 stig, 6.8 fráköst, 2.2 stoðsendingar og 1.2 stolinn bolta. Fortíð Deng er nokkuð athyglisverð en hann er fæddur árið 1985 í Afríku og er meðlimur í Dinka ættbálknum í Súdan en sagan segir að úr Dinka komi stærsta fólk í heimi.Mjög ungur að aldri flutti Deng frá Súdan til Egyptalands ásamt fjölskyldu sinni til að forðast borgarastyrjöld sem átti sér stað í Súdan. Í Egyptalandi kynntist Deng öðrum meðlimi Dinka ættbálksins, engum öðrum en Manute Bol sem flestir muna eflaust eftir úr Washington, Golden State og Philadelphia en hann átti það til að blokka eitt eða tvö skot í NBA deildinni á sínum tíma. Í Egyptalandi náðu Deng og Bol mjög vel saman, Bol byrjaði að kenna Deng körfubolta og varð einskonar lærifaðir hans.
Nokkrum árum seinna fluttu svo Deng og fjölskylda hans til Englands, nánar tiltekið London. Á Englandi hélt hann áfram að spila körfubolta af krafti en lék einnig knattspyrnu og var valinn í U-15 ára landslið Englendinga í knattspyrnu ! Körfuboltinn var þó áfram númer eitt og Deng var ekki nema 13 ára þegar hann lék með enska U-15 ára körfuboltalandsliðinu á European Junior National Tournament þar sem hann skoraði 40 stig og tók 14 fráköst að meðaltali í leik. Deng var valinn MVP mótsins.
16 ára gamall var orðið ljóst að Deng var gríðarlegt efnu í körfubolta og fólk gerði sér grein fyrir að það væri kominn tími fyrir Deng að koma sér til Bandaríkjana. Því flutti hann til New Jersey og byrjaði að leika með Blair Academy high school. Á lokaári hans í high school var hann talinn næstmesta efni í Bandaríkjunum öllum, á eftir öðrum efnilegum dreng, að nafni LeBron James. Á meðan LeBron fór beint í NBA deildina ákvað Deng að fara í Duke háskólann, einn af 10 bestu körfuboltaskólum í Bandaríkjunum. Hann dvaldi í eitt ár í Duke þar sem hann fór með liðinu í 4-liða úrslit. Deng skoraði 15.1 stig á eina ári sínu í háskóla.
Hann var valinn nr.7 í 2004 draftinu af Phenoix Suns en þaðan fór hann strax til Chicago Bulls. Á nýliða ári sínu hjá Bulls skoraði hann 11.7 stig að meðaltali, fór með liðinu í úrslitakeppnina í fyrsta skipti í mörg ár og var valinn í NBA All-Rookie First Team.
Næsta ár hækkuðu svo tölurnar hjá honum og endaði hann í 14.3 stigum og 6.6 fráköstum og lék hann sérstaklega vel í mars og apríl og var það ekki síst fyrir hans hlut að Chicago komst í úrslitakeppninga annað árið í röð. Þar þurfti Deng þó að sætta sig við að byrja ekki, þar sem Andres Nocioni sló í gegn og hélt Deng á bekknum.
Eins og fyrr sagði hefur Deng svo spilað eins og engill í ár og verður fróðlegt að fylgjast með framhaldinu hjá þessum 21 árs gamla leikmanni.
Íþróttir | Breytt 2.2.2007 kl. 19:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 31. janúar 2007
NBA 30. jan. 2007
LA Lakers töpuðu þriðja leik sínum í röð í bandarísku NBA körfuboltadeildinni í nótt, nú fyrir New York Knicks, 99:94. Liðið spilaði án Kobe Bryant, helstu stjörnu sinnar, og hinir leikmennirnir hittu körfuna ekki nógu vel. Eddy Curry skoraði 27 stig fyrir heimamenn í New York og Lamar Odom 25 stig fyrir Lakers.
Úrslit annarra leikja voru þessi:
Indiana 103, Boston 96
Washington 104, Detroit 99
Cleveland 124, Golden State 97
Miami 110, Milwaukee 80
Dallas 122, Seattle 102.
mbl.is
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 30. janúar 2007
NBA 29. jan. 2007
Kevin Garnett átti stórleik fyrir Minnesota Timberwolves í nótt þegar liðið stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Phoenix Suns í NBA deildinni með 121-112 sigri
Denver á í bullandi vandræðum þrátt fyrir að vera komið með stjörnur sínar aftur til leiks og í nótt tapaði liðið 105-101 á heimavelli fyrir Charlotte. Allen Iverson skoraði 31 stig fyrir Denver en Gerald Wallace skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst fyrir Charlotte. Þetta var þriðja tap Denver í röð.
New Jersey lagði meiðslum hrjáð lið Utah Jazz á útivelli 116-115 þar sem Vince Carter skoraði 33 stig fyrir New Jersey og tryggði liðinu sigur með þriggja stiga körfu um leið og leiktíminn rann út. Deron Williams var stigahæstur hjá Utah með 25 stig.
Atlanta lagði Orlando 93-83 þar sem Grant Hill skoraði 21 stig fyrir Orlando en Joe Johnson skoraði 34 stig fyrir Atlanta.
New Orleans lagði Portland 103-91. David West skoraði 21 stig fyrir New Orleans en Zach Randolph skoraði 20 stig og hirti 13 fráköst fyrir Portland.
Memphis lagði Sacramento 124-117. Mike Bibby skoraði 23 stig fyrir Sacramento en Pau Gasol skoraði 34 stig fyrir Memphis.
Houston vann auðveldan sigur á Philadelphia 105-84. Tracy McGrady skoraði 25 stig fyrir Houston en Andre Iquodala skoraði 19 stig fyrir Philadelphia.
www.visir.is
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 28. janúar 2007
NBA 27. jan. 2007
Sökum anna ætla ég að fá að stela þessu að mestu leyti af visir.is í þetta skiptið.
Meistarar Miami töpuðu í þriðja sinn á tímabilinu fyrir Chicago í nótt, 100-97. þar sem Shaquille O'Neal lék ekki með. Kirk Hinrich spilaði frábæra vörn á Dwayne Wade og Miami tapaði í fimmta sinn í síðustu sex leikjum.
O´Neal hafði spilað síðustu tvo leiki Miami eftir að hafa misst af 35 leikjum þar á undan, en forráðamenn Miami vilja ekki taka áhættuna á að láta hann spila tvo daga í röð. Þess vegna var risinn ekki í leikmannahópnum.
Ben Gordon skoraði 34 stig, gaf 7 stoðsendingar og tók 6 fráköst fyrir Chicago en að öðrum ólöstuðum var Kirk Hinrich maðurinn á bakvið sigur Chicago þar sem hann hélt Dwayne Wade, stórstjörnu Miami, í eins miklum skefjum og hægt er auk þess sem hann skoraði sjálfur 26 stig. (Þarna verð ég þó að vera ósammála blaðamanni. Þáttur Gordon í leiknum var gríðarlega stór og auk þess tóku þeir Loul Deng og Ben Wallace saman 30 fráköst. Eins er það þekkt staðreynd að Dwayne Wade er fæddur og uppalin í Chicago og hefur af einhverjum ásæðum aldrei náð sér á strik á móti þeim.)
"Ég held að við séum það lið í deildinni sem ráðum hvað best við Dwayne. Kirk á hrós skilið, hann er einstaklega góður í að þvinga menn upp í erfið skot og gerir ávallt vel með Dwayne," sagði Ben Gordon eftir leikinn. Dwayne Wade skoraði 24 stig í leiknum en átti samt sem áður í erfiðleikum.
Dallas vann sinn 13. heimasigur í röð þegar liðið lagði Sacramento naumlega af velli, 106-104. Dirk Nowitzki skoraði 32 stig fyrir Dallas.
Portland vann Memphis, 135-132, eftir tvíframlengdan leik. Zach Randolph náði sínu mesta stigaskori á ferlinum og setti niður 42 stig en hjá Memphis var Mike Miller stigahæstur með 32 stig.
Denver hefur ekki gengið sem best upp á síðkastið og í nótt tapaði liðið fyrir New Jersey, 112-102.
NO/Oklahoma vann Utah, 94-83, og Indiana sigraði Toronto með sannfærandi hætti, 102-84.
Þá vann Philadelphia góðan heimasigur á Atlanta, 104-89.
Golden State burstaði Charlotte, 131-105.
Minnesota vann loksins, nú LA Clippers örugglega, 101-87.
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. janúar 2007
One Week Anniversary
Í dag (sunnudag) er ein vika síðan fyrsta færslan birtist hér á síðunni.
Síðan þá hafa verið settar inn 25 greinar, þar af 14 um NBA deildina.
Áhugi landans á NBA hefur aukist síðustu ár eftir niðursveifluna sem varð eftir að MJ lagði skóna á hilluna. Þessi áhugi hefur þó ekki endurspeglast í umfjöllun íslenskra fjölmiðla sem leggja mjög litla áherslu á að birta úrslit og fréttir af NBA. Það er einungis Karfan.is sem stendur sig með mikilli prýði í þeim málum.
Sjálfur fylgist ég vel með og hef mikinn áhuga á NBA, ákvað ég því að setja inná þessa síðu nokkrar greinar.
Síðan fyrsta færslan leit dagsins ljós fyrir tæpri viku hafa heimsóknir á síðuna verið alls 2868 sem gera að meðaltali 478 heimsóknir á dag. Af bloggsíðu að vera tel ég þessa aðsókn nokkuð góða og vona ég að hún stytti NBA aðdáendum stundir á netrúntinum.
Þessa stundina er síðan inná Top 50 mest sóttu blog.is síðurnar, fyrir ofan t.d. ágætan dóms- og kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason sem mætti íhuga að bæta svolitlu NBA efni á síðuna sína :)
Með kveðju og von um áframhaldandi áhuga
Íþróttir | Breytt 28.1.2007 kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 27. janúar 2007
Iceland Express Deildin - Tölfræði
Nú þegar öll liðin í Iceland Express Deildinni hafa spilað 14 leiki er Njarðvík efst með 22 stig en lið KR og Snæfells koma þar rétt á eftir með 20 stig.
Hér fylgir tölfræði yfir stigahæstu leikmenn deildarinnar auk þeirra sem hafa tekið flest fráköst og gefið flestar stoðsendingar.
Tölfræðin er tekin saman eftir 12 leiki en leikmenn sem hafa spilað færri en 5 leiki eru ekki teknir með.
Leikmaður | Lið | Leikir | Mín. | Stig. | Leikmaður | Lið | Leikir | Mín. | Stoðs. | ||
1. | Damon Bailey | Þór Þorl. | 12 | 36,4 | 25,0 | 1. | Tyson Patterson | KR | 12 | 35,2 | 7,7 |
2. | Lamar Karim | Tindastóll | 12 | 37,6 | 24,2 | 2. | Adam Darboe | Grindavík | 12 | 33,7 | 6,2 |
3. | Tim Ellis | Keflavík | 8 | 30,3 | 22,4 | 3. | Nate Brown | ÍR | 6 | 32,8 | 5,7 |
4. | Steven Thomas | Grindavík | 12 | 35,6 | 22,1 | 4. | Sverrir Þ. Sverrisson | Keflavík | 12 | 20,9 | 5,7 |
5. | Darrell Flake | Skallagrímur | 12 | 34,4 | 20,8 | 5. | Jeb Ivey | Njarðvík | 12 | 33,3 | 5,6 |
7. | Roni Leimu | Haukar | 12 | 33,5 | 20,6 | ||||||
8. | Páll Axel Vilbergsson | Grindavík | 12 | 36,6 | 20,3 | Leikmaður | Lið | Leikir | Mín. | Fráköst | |
9. | Kareem Johnson | Fjölnir | 7 | 35,3 | 20,0 | 1. | Darrell Flake | Skallagrímur | 12 | 34,4 | 14,8 |
10. | Kevin Smith | Haukar | 10 | 31,5 | 19,8 | 2. | George Byrd | Hamar | 9 | 35,7 | 14,7 |
11. | Jeb Ivey | Njarðvík | 12 | 33,3 | 19,3 | 3. | Friðrik Stefánsson | Njarðvík | 12 | 30,4 | 11,2 |
12. | Nate Brown | ÍR | 6 | 32,8 | 18,8 | 4. | Hlynur Bæringsson | Snæfell | 12 | 33,9 | 11 |
13. | Jeremiah Sola | KR | 12 | 30,2 | 18,8 | 5. | Steven Thomas | Grindavík | 12 | 35,6 | 10,7 |
14 | George Byrd | Hamar | 9 | 35,7 | 18,3 | ||||||
15. | Nemanja Sovic | Fjölnir | 12 | 33,5 | 18,0 |
Íþróttir | Breytt 28.1.2007 kl. 02:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 27. janúar 2007
Klassi
Frábær sigur og núna eru það bara 8-liða úrslitin. Vil annars biðja liðið um að hafa þetta aðeins öruggara eða Actavis að redda mér einhverju við þessu því að þessi spenna er gjörsamlega að fara með mig.
Nú væri algjör draumur að klára Þjóðverjana og þannig fá örlítið slakari andstæðing í 8-liða úrslitunum. Ef sá leikur klárast eru menn búnir að standa undir og fullkomna allar þær væntingar sem gerðar voru til liðsins.
P.S. Mikið er Logi að koma mér á óvart. Búinn að vera hrikalega drjúgur.
Ísland í 8-liða úrslit eftir sigur á Slóveníu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 27. janúar 2007
Ógleymanlegt
Góðir tímar...
1993
1998
...en af hverju hætti hann ekki þarna
Íþróttir | Breytt 28.1.2007 kl. 02:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 27. janúar 2007
NBA 26. jan. 2007
Orlando 90: Howard 19 stig
Boston 90: Jefferson 20 stig
Cleveland 105: Gooden 21 stig
Philadelphia 97: Iquodala 22 stig
*LeBron James lék ekki með Cleveland vegna meiðsla
New York 116: Crawford 52
Miami 96: Wade 37
*Crawford setti 8 þrista úr 10 tilraunum
San Antonio 112: Duncan 26 stig, 13 fráköst
Memphis 96: Warrick 27 stig
New Orleans 88: Mason 24 stig
Sacramento 84: Martin og Bibby 21 stig
Phoenix 98: R.Bell 27 stig
Milwaukee 90: C.Bell 21 stig
*16. sigurleikur Pheonix í röð
Portland 69: Randolph 13 stig
Utah 116: Boozer 25 stig
Denver 111: Anthony 37 stig, Iverson 33 stig
Seattle 102: Allen 36 stig
Minnesota 100: Smith 26 stig
Charlotte 106: Carroll 24 stig
L.A. Lakers 97: Bryant 32 stig
*Framlengdur leikur
Detroit 96: Hamilton 27 stig
Washington 99: Jamison 35 stig
NBA: Washington lagði Detroit á útivelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 28.1.2007 kl. 02:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)