Auðvelt hjá Suns

Phoenix vann frekar þægilegan sigur á San Antonio í öðrum heimaleiknum og fara því með 1-1 stöðu í næstu tvo leiki - í Texas.

Phoenix sýndi í nótt að þeir geta vel spilað varnarleik og lokaði Shawn Marion algjörlega á Tony Parker sem fór hamförum í leik 1.  Eins ákváðu þeir að tvöfalda ekki á Tim Duncan og sá Kurt Thomas um að slást við hann - Duncan skoraði að vísu 29 stig en þau dugðu skammt þar sem restin af liðinu var ekki að gera stóra hluti.

Steve Nash var mjög góður - skoraði 20 stig og gaf 16 stoðsendingar. Þess má geta að San Antonio liðið eins og það leggur sig gaf samtals 14 stoðsendingar.

Stoudemire skoraði 27 - megnið af þeim í seinni hálfleik og var sterkur í leiknum.

Kurt Thomas var að byrja sinn 8 leik fyrir Phoenix og hafa þeir aldrei tapað með hann í byrjunarliðinu.


Cleveland - New Jersey

Í Cleveland sá LeBron James um að klára New Jersey öðru sinni og hafa því unnið alla 6 leiki sína í úrslitakeppninni til þessa.

LeBron skoraði 36 stig og gaf 12 stoðsendingar í leiknum en auk hans lá munur liðana í fráköstunum. 49-32 Cleveland í vil og það sem meira er þá tóku Cleveland 19 sóknarfráköst og móti 3 sóknarfráköstum New Jersey liðsins. 

Cleveland er það lið í deildinni sem skorar flest stig eftir sóknarfráköst og þegar bakverðirnir eru að taka flest fráköst eins og í New Jersey liðinu - þá er þetta gríðarlegt basl.

 


mbl.is NBA: Phoenix jafnaði gegn San Antonio
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband